Category Archives: Tuttugasta og fyrsta öldin

Þorsteinn Vilhjálmsson – In memoriam

Þegar ég byrjaði að kenna við Menntaskólann í Reykjavík, haustið 1970, fékk ég það sem aðalverkefni að taka við eðlisfræðikennslunni í náttúrufræðideild skólans. Það var þá sem við Þorsteinn áttum okkar fyrsta samtal. Það snerist um námsefni tveggja bekkja sem … Continue reading

Posted in Eðlisfræði, Stærðfræði, Stjörnufræði, Tuttugasta og fyrsta öldin, Tuttugasta öldin

Viðtöl við íslenska raunvísindamenn

Stjarnvísindafélag Íslands hefur nýlega opnað sérstaka YouTube-síðu með viðtölum við sex íslenska raunvísindamenn í opnum aðgangi: Vonast er til að með tíð og tíma bætist við fleiri viðtöl og annað efni. Ég reikna jafnframt með að fljótlega verði hægt að … Continue reading

Posted in Eðlisfræði, Stærðfræði, Stjörnufræði, Tuttugasta og fyrsta öldin, Tuttugasta öldin

Þorsteinn Sæmundsson – In memoriam

Ég man ekki til þess að hafa heyrt minnst á Þorstein Sæmundsson fyrr en á fögrum vordegi árið 1967. Þann dag gengum við bekkjarfélagarnir í 6S undir munnlegt stúdentspróf í stjörnufræði í MR. Kennari okkar í þeirri grein var Skarphéðinn … Continue reading

Posted in Eðlisfræði, Stjörnufræði, Tuttugasta og fyrsta öldin, Tuttugasta öldin

Niels Bohr og Íslendingar IV: (c) Eðlisfræði nær fótfestu við Háskóla Íslands

Efnisyfirlit Eins og fjallað var um í köflum IVa og IVb olli seinni heimsstyrjöldin, og ekki síst beiting kjarnorkuvopna gegn Japönum í ágúst 1945, grundvallarbreytingu á þróun heimsmála. Í kjölfarið kom svo kalda stríðið, sem með tilheyrandi kjarnorkuvopnakapphlaupi reyndist mikill … Continue reading

Posted in Eðlisfræði, Efnafræði, Stærðfræði, Stjörnufræði, Tuttugasta og fyrsta öldin, Tuttugasta öldin

Niels Bohr og Íslendingar IV: (b) Alþjóðlegt samstarf á eftirstríðsárunum

Efnisyfirlit Þegar hinn þrítugi kjarneðlisfræðingur, Þorbjörn Sigurgeirsson, kom heim frá Bandaríkjunum haustið 1947 (sjá kafla IVa) hafði hann tekið endanlega ákvörðun um það, að hér skildi hann framvegis búa og starfa. Segja má, að með þeirri ákvörðun hafi rannsóknarandinn frá … Continue reading

Posted in Eðlisfræði, Efnafræði, Tuttugasta og fyrsta öldin, Tuttugasta öldin

Niels Bohr og Íslendingar IV: (a) Kjarnorka

Efnisyfirlit Eins og sagt var frá í II. kafla, var það ekki fyrr en eftir fund nifteindarinnar árið 1932 og framköllun fyrstu kjarnahvarfanna með hraðli sama ár, sem Niels Bohr hóf sjálfur að stunda kennilegar rannsóknir í kjarneðlisfræði.  Árið 1936 … Continue reading

Posted in Eðlisfræði, Efnafræði, Tuttugasta og fyrsta öldin, Tuttugasta öldin

Niels Bohr og Íslendingar V: Andlát Bohrs og arfleifð

Efnisyfirlit Niels Bohr lést hinn 18. nóvember 1962, þá nýorðinn 77 ára. Fréttin barst fljótt um heim allan, þar á meðal til Íslands: Vísir, 19. nóv: Niels Bohr látinn. Þjóðviljinn, 20. nóv: Niels Bohr látinn: „Hann var mestur eðlisfræðingur síðan … Continue reading

Posted in Eðlisfræði, Efnafræði, Tuttugasta og fyrsta öldin, Tuttugasta öldin

Niels Bohr og Íslendingar I: Inngangur og efnisyfirlit

Fyrir skömmu minntist Danska kvikmyndastofnunin þess, að árið 2022 var öld liðin frá því Niels Bohr (1885-1962) hlaut Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði fyrir „rannsóknir sínar á gerð atóma og geisluninni frá þeim“. Þetta var gert með því að veita opinn aðgang … Continue reading

Posted in Eðlisfræði, Efnafræði, Tuttugasta og fyrsta öldin, Tuttugasta öldin

Niels Bohr og Íslendingar II: Tímabilið frá 1920 til 1950

Efnisyfirlit Niels Bohr og verk hans fram að seinni heimstyrjöldinni Árið 1923 lét þýski eðlisfræðingurinn Max Born þau orð falla um Bohr, að „áhrif hans á kennilegar rannsóknir og tilraunastarfsemi [samtímans væru] meiri en allra annarra eðlisfræðinga“. Fjörutíu árum síðar … Continue reading

Posted in Eðlisfræði, Efnafræði, Tuttugasta og fyrsta öldin, Tuttugasta öldin

Niels Bohr og Íslendingar VI: Heimildaskrá

Efnisyfirlit  Fróðlegar upplýsingar um Niels Bohr, ævi hans, verk og áhrif, er meðal annars að finna á vefsíðu skjalasafnsins Niels Bohr Archive og einnig á sögusíðu Niels Bohr stofnunarinnar. Sjá einnig viðtöl á vefsíðu AIP (American Institute of Physics): Oral … Continue reading

Posted in Eðlisfræði, Efnafræði, Tuttugasta og fyrsta öldin, Tuttugasta öldin